Draft · Work in progress

Hugsunin
á bak við Blóðberg

Þetta er ekki söluvefur. Þetta eru strategískar pælingar — um línuna, jurtirnar, söguna og hvert við stefnum. Fyrir framleiðendur, samstarfsaðila og þá sem vilja kafa dýpra en hillur matvöru­verslana.

Staða Byrjunarreitur Markhópur Framleiðendur Síðast uppfært Apríl 2026
01 · Nafnið

Ein lína, tvær hurðir

Blóðberg er nafnið sem festist. Það er gott, það er íslenskt, og það vísar í jurtina sem vex á hraungrundum. En „Berg" er stærri hugmynd — móttak fyrir fleiri vörulínur sem deila sama DNA: norðlæg, hreinræktuð, óspillt.

Með þessu getum við haldið Blóðberg-drykknum hreinum sem eigin vörumerki — og byggt samhliða línu fyrir skyr undir sér lén, sér hönnun, sér markhóp. Skyrberg væri sniðin að erlendum mörkuðum sem hafa ekki íslensku tenginguna, en vita að það sem kemur að norðan er eftirsóknarvert.

02 · Lén og vörulína

Tvö lén, tvö loforð

Aðskilnaðurinn skiptir máli. Drykkur og mjólkurvara eiga ekki að búa saman á sama vefnum — skilaboðin eru ólík, markhópurinn ólíkur, og sjónrænn tónninn ætti að endurspegla það.

Heimalén
bloodberg.com

Drykkir. Kokteilar sem eru áfengir og áfengislausir, sniðuglega úthugsaðir. Íslensku jurtirnar sem grunnur.

  • Kokteilaúrval með villtum íslenskum jurtum
  • Jurtalýsingar — uppruni og hlutverk
  • Efnafræði og næringarefni
  • Dýpri efni fyrir þá sem vilja skilja hráefnið
Fyrir erlenda markaði
skyrberg.com

Skyr í sinni eigin heimili. Sér hönnun, án íslenska leturs, en með sama norðlæga þema.

  • Skyrgerð — frá kú í disk
  • Sagan og uppruninn
  • Úrvalið og bragðtegundir
  • Skyrdrykkir (eyða í hillum erlendis)

Observation frá Kanada: kanadískt skyr er á hillum — en dósin er ljót (grænir stafir, hvít dós), og engir skyrdrykkir eru í úrvalinu. Það er eyða. Og í eyðum felast markaðir.

03 · Jurtirnar

Villta uppspretta

Allar vörur Blóðberg-línunnar byggjast á jurtum sem annaðhvort komu með víkingum eða voru þegar til þegar landið byggðist. Sumar eru séríslenskar í ímyndunaraflinu — í raun eru þær norðlægar, útbreiddar á Íslandi, í Skandinavíu, tempruðum Asíu og Kanada.

Blóðberg
Thymus praecox / serpyllum
Landnámsjurt

Þolir rok, kulda og þurrk — vex lágt á hraunmóa. Ættkvíslin er útbreidd um Evrópu, Afríku og tempruð svæði Asíu. Blóðbergste hefur verið drukkið hér í aldaraðir.

Rabbabari
Rheum × hybridum
Síðkoma · 19. öld

Kom seint — elstu íslensku heimildir frá 1883, líklega frá Danmörku eða Norðurlöndum. Rót skráð í kínverskum lækningaritum um 270 f.Kr. Upprunalega frá Asíu, en nú jafn íslenskur og garður­inn.

Birki
Betula pubescens
Landnám

Var hér þegar víkingar lentu. Útbreidd ættkvísl í Asíu og Evrópu. Íslenska birkið er lágvaxið og hart — mótað af roki og ófrjósömum jarðvegi. Gefur ilminn sem skilgreinir íslenskan vor.

Ljónslappi
Alchemilla alpina
Landnám

Partur af upprunalegu íslensku flórunni. Harðgerð, vex í móa og á heiðum. Nýtt í grasalækningum og sem bragðefni í óhefðbundnum drykkjum.

Bláber
Vaccinium uliginosum
Norðlæg

Vex villt um allt land, í móum og á heiðum. Tínd í höndum á sumrin — partur af íslenskri menningu löngu fyrir skipulagða ræktun.

+ fleiri
Listinn opinn
Í vinnslu

Hvönn, fjallagrös, mýrasóley, einir — allt norðlægar jurtir sem gætu passað inn í línuna síðar. Viðmiðið er alltaf: vex á Íslandi, á sér sögu, hefur bragð sem stenst.

Sömu plönturnar vaxa víðar — í Kanada, í tempruðum Asíu, um Skandinavíu.
En tengingin við Ísland er það sem heimurinn vill kaupa.
Grunnforsenda línunnar
04 · Landnám og síðkomur

Víkingar, lyng og rabbabarinn sem kom seint

Þegar víkingar komu til Íslands var blóðberg hér. Birki líka. Ljónslappi. Grunnurinn var þegar til — flóran var norðlæg og hafði mótast af ís, roki og eldgosum í árþúsundir.

Rabbabarinn er yngri. Elstu íslensku heimildir eru frá 1883, og þar er talað um plöntu sem hafði verið í ræktun í nokkur ár. Hann barst líklega frá Danmörku, en upprunalega kom hann til Evrópu frá Asíu — rótin var skráð í kínverskum lækningaritum um 270 f.Kr.

Getgáta sem er kúl sem frásögn, þó hún sé óstaðfest: hvort víkingar hafi komið með einhverjar plöntur með sér. Það vitum við ekki. En spurningin sjálf er nógu góð til að nota í sögu vörumerkisins.

05 · Catchið

Norðrið, ekki landfræðin

Blóðberg vex í Asíu. Birki vex um allt Kanada. Rabbabari kom frá Kína. Ef við værum að selja plöntur, væri engin einstök saga.

En við erum ekki að selja plöntur. Við erum að selja uppruna. Arctic circle. Óspillta víðáttu. Eldfjöll, regn og myrkur. Ísland er tengingin sem heimurinn vill kaupa — ekki jurtin sjálf.

Þessi forsenda opnar dyr síðar meir. Ef „Berg" línan festist, gætu svipaðar hugmyndir gengið upp á öðrum norðlægum svæðum — Grænlandi, Færeyjum, norrænum héruðum Kanada eða Skandinavíu — með íslenska grunninn sem upprunalegan viðmiðunarpunkt.

06 · Stærð og verð

Drykkir fyrir fjöldann.
Te fyrir þá fáu.

Blóðberg­ste hefur verið drukkið á Íslandi um aldir — en það þarf gríðarlegt magn af jurt til að massframleiða það. Sú takmörkun er ekki hindrun. Hún er eiginleiki. Hún gerir teið að lúxus.

Mass

Drykkir og kokteilar

Flöskuvatn með bragði. Áfengir og áfengislausir kokteilar. Aðgengilegt verð, mikill fjöldi, hillur matvöruverslana og veitingastaða.

Hér er þar sem fyrirtækið vex — venjulegur neytandi, endurtekin kaup, byggjandi á vörumerkinu.

590–2.200 kr per flösku
Niche · Ultra premium

Blóðbergste, handtínt

Þurrkað blóðberg, tínt á Hornströndum eða öðrum óspilltum stöðum. Pakkað í öskju sem segir sögu. Sáralítið magn í umferð.

Þetta er ekki vörulína — þetta er artifact. Verðmiði sem speglar sjaldgæfið og vinnuna. Dýrari per gramm en kókaín í götuverslun. Það er einmitt pointinn.

~100 USD per öskju

Þetta eru pælingar.
Ekki loforð.

Verkefnið er á byrjunarreit. Engin vara er komin í framleiðslu, engin lína er endanleg, og öll atriði hér á síðunni geta breyst — eða horfið.

Þú ert hér af því þú hefur áhuga á því sem er í mótun. Vertu í sambandi ef þú vilt leggja eitthvað til.

Uppfært · Apríl 2026